Well... þá er komið að smá öppdeiti, svoldið langt síðan ég skrifaði síðast... Sumsé þá er ég byrjuð að vinna á fullu, það var reyndar lítið sem ég fékk að gera fyrstu dagana í vinnunni, tók til í öllum skúmaskotum og gerði allskonar tilgangslaus verkefni, en þetta er allt að koma og fyrsta skipið kemur til landsins 4. júní á Akureyri og það kemur svo hingað til Reykjavíkur 6. júní og þá verð ég reddí niðrá höfn til að taka á móti því. Ég er mjög ánægð með fyrirtækið (Atlantik) sem ég er hjá því þeir sem vinna þarna eru alveg með allt á tæru og ég get enn sem komið er ekki fundið neitt að því. Þau eru mjög upptekin af því að veita bestu þjónustuna og gæðakröfurnar eru mjög háar og ég fíla það í tætlur. Svo fæ ég sér skrifborð og svona... og svo erum við með fínt eldhús og allar græjur og meira að segja interior design blöð sem hægt er að lesa í hádeginu

Nebbla allt konur sem vinna þarna núna, reyndar er einn karlmaður sem vinnur þarna, eigandinn... og í svo eru tveir strákar að bætast við núna um mánaðarmótin sem ég verð svo heppin að vera að vinna með

Svo er skrifstofan staðsett alveg við höfnina svo að þegar ég horfi út um gluggann þá sé ég öll skip sem sigla inn og út, og svo get ég líka fylgst með flugvélunum sem fljúga þarna yfir.
Annað sem hefur "komið fyrir mig" er að ég keypti mér bíl (sem óli á líka dáldið í en ég keyptann eilla svona surprise!) sem hefur fengið viðurnefnið "rauða þruman" eða "the read thunder" á frummálinu. Sumir vilja kalla þetta CSI bílinn því númerið á honum er DNA sem er mjög auðvelt að muna! Þetta er sumsé draumabíllinn minn, eldrauður Volvo s40 árg. 2007, 150 hö, diesel vél með topplúgu og leðri...og svo framvegis... en semsagt, ég er náttúrulega orðin staurblönk en það er sko alveg þess virði!

Þennan bara VARÐ ég að fá og svo var sölumaðurinn líka einstaklega sannfærandi. Það eina sem ég hugsaði ekki útí var að kaupa yfirbreiðslu á hann svo ég þyrfti ekki að þvo hann annan hvern dag, því að ég er náttúrulega að vinna niðrá höfn þar sem mesta framleiðslan á fugladriti á sér stað. Oh well...
Við skruppum austur í gærkvöldi því að þetta er ábyggilega síðasta fríhelgin mín í sumar, og við kíktum á Góu litlu og svo kettlingana sem fæddust í síðustu viku, þeir eru ekki enn búnir að opna augun.. ógó krúttlegir!
Á morgun er svo sjómannadagurinn og við Óli ætlum að kíkja niðrí Snarfara og ditta aðeins að Aquariusi, en hann var sjósettur í gær. Ætlum að fá okkur brunch einhvers staðar útá sjó og taka svo þátt í skemmtidagskránni
Svo á mánudaginn fáum við afhenta íbúðina okkar... LOKSINS og við verðum semsagt að flytja á mánudag og þriðjudag og mála og græja... það verður smá pressa að klára þetta!
Ekki meira í bili......
Chao!