Inga Júlía Ólafsdóttir

09.07.2009 00:11:54 / ingajulia

Hvað get ég sagt...

Mæta í BootCamp, fara í sund, vinna, borða vinna meira og borða aðeins meira og sofa... Makes my day...!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2009 22:06:04 / ingajulia

Hey alle sammen

Ég er búin að ákveða að byrja aftur að blogga... allavega reyna það!
Það er búið að vera frekar mikið að gera í vinnunni síðustu vikurnar og ég er búin að vera að ferðast svoldið á Ísafjörð, Seyðisfjörð og á Akureyri til að taka á móti skipum. Síðustu helgi gekk ég á Fimmvörðuháls með BootCamp hópnum. Við vorum um 200 manns sem gengum og nokkrir skokkuðu reyndar yfir, þar á meðal Óli minn sem var 3.5 tíma yfir hálsinn (á meðan ég var 8 tíma gangandi!!). Við fengum æðisgengið veður allan tímann, sól og hita. Um kvöldið grilluðum við og spjölluðum við liðið. Er ennþá að ná fullum krafti eftir þessa þrusu göngu! :)
Á morgun fæ ég frí aftur, og það verður algjört æði - þessi vinnuvika er búin að vera mjööög löng og strembin. Kíki kannski á útsölur á morgun veiveivei :)


» 1 hafa sagt sína skoðun


Leitarbox

Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti